1. grein
Félagið heitir Leikfélag Keflavíkur.
2. grein
Lögheimili félagsins skal vera í Reykjanesbæ, en félagssvæði þess Reykjanesbær og nágrenni.
3. grein
Tilgangur félagsins er að vekja áhuga á leiklist og bókmenntum með leiksýningum og bókmenntakynningum.
4. grein
Félagið skal vera í Bandalagi íslenskra leikfélaga.
5. grein
Inntaka nýrra félaga skal vera háð samþykki einfalds meirihluta á félagsfundi. Aðrar hömlur má ekki leggja á inngöngu fólks í félagið, enda sé það búsett á félagssvæðinu.
6. grein
Leikfélag Keflavíkur gefur út viðurkenningarskjöl til handa þeim er gerast styrktarfélagar og greiða árlega tillag til starfsemi félagsins, sem stjórnin ákveður hverju sinni.
7. grein
Árgjald skal ákveðið á aðalfundi ár hvert. Skuldi félagsmaður 3 ár eða meir telst hann ekki lengur í félaginu.
8. grein
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg.
9. grein
Stjórn félagsins skipa 5 menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Skulu þeir kosnir skriflegri kosningu á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig skulu kosnir tveir varamenn í stjórn. Stjórnin skal halda gerðabók.
10. grein
Aðalfundur kýs 2 félagslega endurskoðendur. Félagið lætur löggiltan endurskoðenda setja upp og yfirfara reikninga félagsins fyrir aðalfund.
11. grein
Aðalfundur skal haldinn á tímabilinu 1. til 20. maí ár hvert. Boða skal bréflega til aðalfundar með minnst einnar viku fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað og hann haldinn á réttum árstíma. Reikningsár félagsins skal vera frá 1. maí til 30. apríl. Stjórnin tekur ákvarðanir fyrir hönd félagsins á milli aðalfunda. Hún boðar til almennra funda eftir þörfum, á sama hátt og boðað er til aðalfundar. Stjórninni er skylt að halda almennan félagsfund ef 10 félagar óska þess bréflega.