Frumleikhúsið var opnað formlega þann 4. október 1997 og síðan þá hefur verið settur á svið fjöldi leiksýninga auk annarra viðburða. Meðal annars hafa verið haldnar þar ráðstefnur, tónleikar, fundir og margt fleira.
Stóri salur Frumleikhússins rúmar 130 manns í sæti auk þess sem hægt er að fjarlægja sæti og bekki ef eftir því er óskað.
Litli salur Frumleikhússins er líka til leigu fyrir minni viðburði og í honum er 50 sæti og borð með. Í minni salnum er einnig lítill bar þar sem aðstaða er til að selja kaffi og ýmislegt fleira.